Fimmtudagur 31. janúar 2019 kl. 10:31
Fá ráðgjöf vegna hugsanlegrar sameiningar við Sorpu
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur falið bæjarstjóra að ganga til samninga við Sperora ehf. um ráðgjafaþjónustu varðandi hugsanlega sameiningu Kölku og Sorpu.
Á síðasta fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar var lögð fram kynning og greinargerð frá Kölku varðandi sameiningarviðræður við Sorpu.