Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fá meiri tíma á heimilum sínum í Grindavík en enginn gistir í bænum
Frá Grindavík. Ljósmynd: Golli
Miðvikudagur 13. desember 2023 kl. 13:53

Fá meiri tíma á heimilum sínum í Grindavík en enginn gistir í bænum

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að rýmka þann tíma sem Grindvíkingar hafa til þess að huga að eigum sínum i Grindavíkurbæ. Rýming fer nú fram eftir kl. 21 á kvöldin. Sami tími verður því í gildi fyrir íbúa og starfsmenn fyrirtækja eða frá því kl. 7 á morgnana til kl. 21. Fjölmiðlar hafa aðgang að bænum á sama tíma.  Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja verður ekki  fylgt inn á svæðið en viðbragðsaðilar verða til staðar í bænum. Bærinn verður svo rýmdur eftir kl. 21 daglega.  Óviðkomandi er bannaður aðgangur.  Eftirlit verður haft með þeim bílum sem fara inn og út úr bænum.

Ekki er talið óhætt að leyfa íbúum að gista í bænum í desember. Staðan verður endurmetin í byrjun næsta árs. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ákveðið var að færa almannavarnastig á hættustig fimmtudaginn 23. nóvember sl. 

Nýtt hættumatskort var gefið út 8. desember sl., sjá viðhengi.  Kortið sýnir mat á hættum sem eru til staðar og nýjum hættum sem gætu skapast með litlum fyrirvara innan tilgreindra svæða. Eingöngu er lagt mat á hættu innan þessara svæða, en hættur geta leynst utan þeirra. Aðstæður innan og utan svæðanna geta breyst með litlum fyrirvara.   Kortið verður uppfært reglulega og ræðst af því hver þróun virkninnar verður.

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi. Hægt hefur aðeins á landrisinu frá því á föstudag, en hraðinn á landrisinu er engu að síður meiri en mældist fyrir 10. nóvember sl. þegar að kvikugangurinn sem liggur undir Grindavík myndaðist.  Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi og einnig eldgosi.

Að mati Veðurstofu Íslands kalla umbrotin 10. nóvember sl. á mun umfangsmeiri vöktun á Reykjanesskaga og skipuleggur Veðurstofan nú umfangsmeiri vöktun en verið hefur.  Hlutverk Veðurstofunnar með vöktun og hættumati er að skapa forsendur fyrir viðbragðsaðila til að taka ákvarðanir um aðgerðir.

Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar gefa það til kynna með hljóðmerkjum og ljósmerkjum.  Akstursleiðir út úr bænum eru eftir Nesvegi, Suðurstrandarvegi og eftir atvikum Grindavíkurvegi.

Til athugunar fyrir þá sem fara inn í bæinn:

  • Íbúar í Grindavík þurfa ekki að skrá sig til að komast inn í bæinn.  Bílar eru taldir inn og út af svæðinu.
  • Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.
  • Grindavíkurvegur veður opinn á morgun fimmtudag og á föstudag.   Þungaflutningar um veginn liggja þá að mestu leyti niðri.   Vegurinn er á köflum ekki í góðu ásigkomulagi og eru ökumenn því beðnir um að aka varlega.
  • Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum.  Ekki er æskilegt að börn séu tekin með en sprungur geta reynst viðsjárverðar. 
  • Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is
  • Mikilvægt er að þeir sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila.