Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
miðvikudaginn 26. júní 2019 kl. 08:28
Fá 30% afslátt
Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt 30% afslátt til eldri borgara og öryrkja á tjaldstæði Grindavíkur.
Umhverfis- og ferðamálanefnd hafði lagt til við bæjarráð að gjaldskrá tjaldsvæðisins verði breytt þannig að eldri borgarar og öryrkjar fái 30% afslátt.