Eykt klárar brúarsmíðina

Vegagerðin segir, að brýrnar séu við mislæg gatnamót við Stapahverfi og Njarðvík. Reiknað er með að fyrri brúarsmíðinni ljúki 5. júlí og þeirri seinni í september/október. Eykt tekur einnig að sér frágang þeirra brúa sem þegar er búið að steypa upp.
Aðrir þættir verksins, jarðvinna og lagning bundins slitlags verða boðnir út á næstu dögum.