Eykt byggir fyrir HS í Svartsengi
Hitaveita Suðurnesja og verktakafyrirtækið Eykt skrifuðu í gær undir samning vegna byggingarmannvirkja fyrir Orkuver 6 í Svartsengi. Þeir Gunnar Valur Gíslason frá Eykt ehf. og Júlíus Jón Jónsson frá Hitaveitu Suðurnesja hf. skrifuðu undir samninginn. Gert er ráð fyrir að verkinu verðið lokið í október 2008.
Mynd af vefsíðu HS. Frá undirritun samningsins.