Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Eyðilagði 20 milljóna sportbíl - verður sjálfur að bera tjónið
Þriðjudagur 13. október 2009 kl. 11:14

Eyðilagði 20 milljóna sportbíl - verður sjálfur að bera tjónið


Karlmaður á fertugsaldri, sem gjöreyðilagði 20 milljón króna sportbíl á Grindavíkurveginum í janúar á síðasta ári, fær tjónið ekki bætt. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi manninn með glannaakstri hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi. Bifreiðin hafnaði tæpum 200 metrum fyrir utan veg.

Eigandi bílsins hafði gert kröfu um að bótaskylda vegna tjónsins yrði viðurkennd. Hann missti stjórn á bifreiðinni á Grindavíkurveginum með þeim afleiðingum að hún gjöreyðilagðist.  Bifreiðin var af gerðinni Porsche 911 GT3 RS en hún mun vera verðlögð á um 15-20 milljónir króna.

Samkvæmt rannsóknarskýrslu sem unnin var af prófessor í vélaverkfræði, ók maðurinn á 170-210 km hraða um glerhálan Grindarvíkurveg þann 11.janúar á síðasta ári. Í lögregluskýrslu er aðstæðum lýst þannig að myrkur hafi verið og hálka á bundnu slitlagi yfirborðs vegarins. Ökumaður missti stjórn á bifreiðinni á Gíghæð. Í rannsóknarskýrslunni segir að ökutækið hafi skriðið á hálu yfirborði vegarins 50,9 metra, þá kastast 73,4 m yfir nokkuð slétt yfirborð sem sé með grófri þéttri möl, síðan hafi bíllinn farið upp hæð, yfir mjög gróft hraun og lent á steini. Sú vegalengd sé 48,6 metrar. Að lokum hafi ökutækið kastast í loftinu 25,5 metra og síðan stöðvast.

Samanlögð vegalengd frá fyrstu núningsförum þar til bifreiðin stöðvaðist hafi því verið 198,4 metrar.

Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala en meiðsli hans voru minni háttar. Hann byggði málsóknina á því að ósannað væri að hann hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi. Dómurinn var ekki sammála þeim framburði og taldi manninn hafa með glannaakstri sýnt af sér stórkostlegt gáleysi. Vátryggingarfélag Íslands er því sýknað af bótakröfu hans.

---

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Mynd - Bifreið sömu gerðar og um ræðir í fréttinni.