Fréttir

Evrópski menningarminjadagurinn haldinn í Reykjanesbæ
Lögreglustöðin í Keflavík. Í dyrunum stendur yfirlögregluþjónninn Sigtryggur Árnason. Þessi braggi, sem kom frá hernum, var á milli Ungó og SBK hússins. Vinstramegin sést aðeins í hús rafveitunnar sem seinna var lögreglustöð með meiru. Á þessum tíma var s
Fimmtudagur 12. október 2017 kl. 09:24

Evrópski menningarminjadagurinn haldinn í Reykjanesbæ

Evrópski menningarminjadagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 14. október næstkomandi í Reykjanesbæ. Dagurinn er samstarfsverkefni Minjastofnunar Íslands, Reykjanes Jarðvangs og Byggðasafns Reykjanesbæjar. Dagskráin hefst í Duus safnahúsum kl. 14 með stuttum erindum en að þeim loknum verður farið í vettvangsferð með leiðsögn á Patterson flugvöll. Allir eru velkomnir.

Menningarminjadagarnir eru haldnir ár hvert í þeim 50 löndum sem hlut eiga að Menningarsáttmála Evrópu. Allt frá Azerbaijan í austri, til Portúgals í vestri og norður til Noregs. Markmið þessara daga er að vekja athygli og áhuga á ríkri og fjölbreyttri menningu þeirra samfélaga sem byggja álfuna. Þema ársins 2017 er „Minjar og náttúra“. Boðið er upp á fjölbreytta viðburði hringinn um landið sem tengjast á einn eða annan hátt mannlífi, náttúru og sögu fyrri tíma hérlendis.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024