Evrópsk umhverfistækni gerir samninga um smíði og uppsetningu sorpgösunarkerfis í Skotlandi

Fyrirtækið smíðaði og setti upp hliðstætt gösunarkerfi í nýrri endurvinnslustöð Sorpsamlags Þingeyinga ehf. á Húsavík. Helstu kostir þessarar tækni er að sorpið þarf nánast ekkert að forvinna og mjög lítið vinnuafl þarf við reksturinn samanborið við aðra sorpeyðingartækni. Í gösunarkerfinu á Húsavík er eytt um 20 tonnum af sorpi á dag. Sorpið þar er af mörgum mismunandi efnisflokkum m.a, mikið af hjólbörðum, landbúnaðarplasti, auk úrgangs frá slátrun og kjötvinnslu. Búnaðurinn er mjög fjölhæfur hvað þetta varðar.
Í búnaðinum er sorpinu brennt við súrefnissvelti í gösunarrýmum en við það myndast metangas, kolmónoxíð og fleiri gastegundir sem síðan eru brenndar í eftirbrennslurými. Varmaorkan frá kerfinu eru nýtt til raforkuframleiðslu. Útblástur frá stöðvunum er hreinsaður með þurrhreinsibúnaði sem fyrirtækið smíðar einnig hérlendis. Búnaðurinn uppfyllir allar útblásturs- og umhverfiskröfur samkvæmt reglugerðum evrópusambandsins.
Fyrirtækið hefur þróað sorpgösunartæknina hérlendis, en upprunalega hugmynd hennar má rekja til bandaríska fyrirtækisins EnerWaste International Corporation. Evrópsk Umhverfistækni ehf er í helmingseigu Íslenskrar Umhverfistækni ehf í Reykjanesbæ og EnerWaste International Corporation í Bandaríkjunum.