Mánudagur 10. september 2001 kl. 09:22
Esther Helga stjórnar tónlistarskólanum
Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á fundi sínum fyrir stuttu að ráða Esther Helgu Guðmundsdóttur skólastjóra Tónlistarskóla Grindavíkur. Esther Helga hefur stjórnað hinum ýmsu kórum en sér nú um stjórn Brimkórsins. Ráðningin er tímabundin í fjögur ár.