Bygg
Bygg

Fréttir

Erlingur reynir að opna augu bæjarstjórna á Suðurnesjum
Laugardagur 31. júlí 2010 kl. 10:31

Erlingur reynir að opna augu bæjarstjórna á Suðurnesjum

„Hvað þarf að gerast til að opna augu ykkar?“ spyr Erlingur Jónsson forstöðumaður Lundar í bréfi sem hann hefur sent sveitarfélögum á Suðurnesjum, þar sem hann óskar eftir auknum fjármunum til útgáfu bæklingsins „Fíknefni, þú og barnið þitt“ og annarra þátta í starfsemi Lundar.

Við afgreiðslu málsins hjá Sandgerðisbæ var eftirfarandi bókað: „Bæjarráð telur rétt að fjárhagslegur stuðningur Sandgerðisbæjar við félagið Lund verði áfram á sameiginlegum vettvangi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum“.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Lundur mun flytja í nýtt húsnæði í Reykjanesbæ þann 9. ágúst nk. Þá flytur Lundur að Suðurgötu 12 í Keflavík, þar sem Björgin er einnig með sína starfsemi.