Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Erlendum ferðamönnum í Leifsstöð fækkar um 5%
Þriðjudagur 6. júlí 2010 kl. 12:35

Erlendum ferðamönnum í Leifsstöð fækkar um 5%

Um 53.500 erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Leifsstöð í síðasta mánuði og fækkar þeim um eitt þúsund manns frá sama mánuði í fyrra. Fækkunin í júní nemur tveimur prósentum milli ára, samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu og greint er frá á visir.is. Frá áramótum hafa 170.400 erlendir gestir farið frá landinu. Þetta eru um 8.500 færri en árinu áður og nemur fækkunin á tímabilinu tæpum fimm prósentum milli ára. ?


Þróunin á milli einstakra markaðssvæða er nokkuð ólík í júní. Þannig er veruleg fjölgun frá Norður-Ameríku, eða rúm 21% á meðan fækkun er frá öðrum mörkuðum. Þó má sjá fjölgun hjá einstökum löndum, þannig fjölgar Þjóðverjum í júní um 13,3% á milli ára, Frökkum um 7,8% og Norðmönnum um 5,3%. Veruleg fækkun er hins vegar frá Hollandi, eða 38,8% og má m.a. rekja það til fjölda Hollendinga sem kom til landsins í tengslum við landsleik Íslands og Hollands í júní í fyrra í undankeppni HM í knattspyrnu. ?

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Hvað varðar fjölgun frá Bandaríkjunum þá hefur orðið mest aukning á farþegum sem dvelja hér á landi í 2-4 sólarhringa á leið sinni yfir hafið. Einnig hefur sætaframboð aukist til Bandaríkjanna.?


Sé litið á árið í heild eru niðurstöður áþekkar, þ.e. fjölgun frá Norður-Ameríku en fækkun víðast annars staðar. Góð fjölgun Breta fyrstu þrjá mánuði ársins skilar þó aukningu þaðan upp á 3,5% frá áramótum.

Heimild: visir.is