Bygg
Bygg

Fréttir

Erill vegna ölvunar á Keflavíkurflugvelli
Þriðjudagur 13. desember 2016 kl. 06:00

Erill vegna ölvunar á Keflavíkurflugvelli

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli um síðustu helgi vegna ölvaðra flugfarþega. Á laugardagskvöld barst beiðni um aðstoð vegna fimm farþega sem fengu ekki að fara um borð í flug til Varsjár vegna ölvunar. Lögregla vísaði þeim niður í komusal, öllum fyrir utan einn sem var ofurölvi og neitaði að yfirgefa flugstöðina. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var látinn sofa úr sér.

Áður hafði karlmaður sem ætlaði um borð í flugvél á leið til Vilnius verið stöðvaður vegna ölvunar.  Lögreglumenn fylgdu honum út úr flugstöðinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ekki er allt upptalið því að einnig var tilkynnt um par sem var með óspektir í brottfararsal flugstöðvarinnar.  Fólkinu var tilkynnt að það færi ekki með fyrirhuguðu flugi og tók það þeirri tilkynningu illa. Lögregla færði parið á lögreglustöð þar sem því var veitt tiltal vegna hegðunarinnar.