Erill á næturvakt lögreglu
Tveir ökumenn voru í nótt kærðir fyrir ölvun við akstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru tveir aðilar handteknir fyrir óspektir í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. Þeir voru báðir ölvaðir og hafði annar þeirra að auki lítilræði af fíkniefnum í fórum sínum. Þá var einn maður handtekinn í heimahúsi vegna líkamsárásar. Töluverður mannfjöldi var í miðbæ Reykjanesbæjar að því er fram kemur í dagbók lögreglu og nokkrar annir í tengslum við skemmtanalífið.