Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Erfiðleikar Sparisjóðabankans fella ekki Sparisjóðinn
Föstudagur 31. október 2008 kl. 09:50

Erfiðleikar Sparisjóðabankans fella ekki Sparisjóðinn


„Staða Sparisjóðsins hefur í sjálfu sér ekkert breyst mikið frá því sem komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga. Fréttir um erfiðleika Sparisjóðabankans vegna veðkalls Seðlabankans breyta engu þar um.“ segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri. Lausafjárstaða Sparisjóðsins í Keflavík hefur farið batnandi og er hún nauðsynleg forsenda þess að við getum stutt viðskiptavini okkar í þeim erfiðleikum sem framundan eru.

„Síðustu daga og vikur höfum við fundið fyrir miklum velvilja samfélagsins í okkar garð og ber að þakka það. Sveitafélögin á Suðurnesjum hafa öll ákveðið að ávaxta stóran hluta af sparnaði sínum og lausafé hjá okkur og undirstrikar það meðal annars mikilvægi þess að allir standi saman á þessum erfiðu tímum. Eins hafa einstaklingar, fyrirtæki, lífeyrissjóðir og stofnanir lagt sitt af mörkum,“ segir Geirmundur.

Í umróti síðustu vikna hafa ýmsar sögur farið af stað um Sparisjóðinn sem ekki eiga við rök að styðjast. Vangaveltur um það hvenær hann lokar eða hvenær Fjármálaeftirlitið taka yfir sjóðinn eru allar úr lausu lofti gripnar. Eflaust má rekja þessar sögusagnir til óttans og óvissunnar sem verið hefur í samfélaginu síðustu vikur. „Staðreyndin er hinsvegar sú að hvorki vandamál viðskiptabankanna eða mögulegt fall Exista og Sparisjóðabankans mun draga Sparisjóðinn í Keflavík niður. Hlutafé þessara fyrirtækja myndi tapast en það myndi ekki hafa áhrif á lausafjárstöðu sjóðsins né hafa veruleg áhrif á eiginfjárhlutafallið,“ segir Geirmundur í samtali við Víkurfréttir og bætir við: „Nú er tími samstöðu. Næstu mánuðir verða vissulega erfiðir fyrir alla en nú er mikilvægt að við styðjum hvert annað. Sparisjóðurinn í Keflavík er 101 árs nú í nóvember og hefur því gengið í gegnum ýmis erfiðleikatímabil með viðskiptavinum sínum og samfélaginu öllu. Við munum standa af okkur þessa erfiðleika. Sparisjóðurinn er ekki að falla“.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024