Er þetta leikhús fáránleikans?
Fyrsti bæjarstjórnarfundur hins nýja meirihluta í Grindavík, og þess fjórða sem myndaður er á þessu kjörtímabili, fór fram í gær. Þar var tekist á um ráðningu nýs bæjarstjóra en bæjarfulltrúar Framsóknar lýstu undrun sinni á því hvernig bæjarstjórnarmálin væru afgreidd af fyrrum samstarfsflokkum. Bæjarfulltrúar Framsóknar lögðu fram bókun þar sem talað er um „umpólunaráráttu“ Samfylkingar og „leikhús fáránleikans“.
„Í júní 2008 þegar Samfylking boðaði B-lista til fundar við sig og viðraði hugmyndir um meirihlutaviðræður og samstarf var útgangspunkturinn að þáverandi oddviti samfylkingar yrði nýr bæjarstjóri Grindavíkur.
Allir vita svo eftirleikinn af því; nýr bæjarstjóri samfylkingar og samningur við Ólaf Örn Ólafsson upp á tugi milljóna fyrir bæjarsjóð var í uppnámi. Oddviti D-lista hefur marg ítrekað með bókunum að sá kostnaður væri upp á hátt í 100 miljónir króna fyrir Grindvíkinga.
Nú geta Samfylkingin og fulltrúar vinstri grænna spólað sig svo tilbaka varðandi bæjarstjóramálin að nú skal ljúka því sem fulltrúar D og S lista hófu í byrjun kjörtímabils með umdeildum samningi við bæjarstjórann, Ólaf Örn Ólafsson, að síðustu 6 mánuði skal hann, vegna umpólunaráráttu S-lista, klára samninginn sem hefur kostað bæjarbúa tugi milljóna króna.
Er þetta ekki leikhús fáranleikans?,“ er spurt í bókun B-listans.
Bókanir voru lagðar fram á víxl af fulltrúum B-lista og Herði Guðbrandssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingar. Þær má lesa nánar í fundargerð hér.
Samþykkt var með 5 atkvæðum meirihlutans að ráða Ólaf Örn Ólafsson sem bæjarstjóra samkvæmt framlögðum ráðningarsamningi, forseta bæjarstjórnar er falið að undirrita samninginn. Fulltrúar B-lista greiddu atkvæði á móti.
----
VFmynd/elg - Fulltrúar flokkanna í Grindavík á fundi í Bryggjukaffi í gær. Hörður Guðbrandsson í pontu.