Íslandsbanki ljósanótt
Íslandsbanki ljósanótt

Fréttir

Er fallegasti garðurinn í þínu hverfi?
Mánudagur 20. júlí 2026 kl. 09:36

Er fallegasti garðurinn í þínu hverfi?

 Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga 2026. Íbúum gefst kostur á að senda inn tilnefningar um þá einstaklinga, garða, götur, svæði, stofnanir, félagasamtök eða fyrirtæki, sem þeim finnst koma til greina.

Á hverju ári eru veittar viðurkenningar fyrir gróna garða, nýja garða og annað sem vel hefur verið gert. Einnig eru veittar viðurkenningar fyrir vel uppgerð eldri hús og síðustu ár hefur jafnframt verið veitt viðurkenning fyrir framlag til umhverfis og samfélags. Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningar Betri Reykjanesbær, fyrir 10. ágúst. 

Langbest Ljósanótt
Langbest Ljósanótt

Á kortavef Reykjanesbæjar (https://www.map.is/reykjanesbaer/) er hægt að sjá hverjir hafa hlotið umhverfisviðurkenningar frá árinu 2000. 

Umhverfisviðurkenningar verða afhentar á Ljósanótt.

Bílakjarninn
Bílakjarninn