Eplatré gróðursett í Vogum
Á morgun, þriðjudag munu fulltrúar frá hvatafélaginu Á-Vexti koma með eplapar, þ.e. tvö eplatré hvort af sínu yrki, og gróðursetja þau í samvinnu við íbúa í Vogunum í Aragerði, skrúðgarði sveitarfélagsins.
Jafnframt verða gróðursett fleiri ávaxtatré, m.a. kirsuberjatré, sem sveitarfélagið mun leggja til. Ef allt fer að óskum ættu gestir og gangandi að geta tínt ber, epli og perur í Aragerði í Vogum á komandi árum, segir í fréttatilkynningu.
Vogabúar eru hvattir til að mæta í Aragerði á þriðjudaginn og taka með sér skóflur og gjarna berjarunna sem einhverjir kynnu að eiga aukreitis í garði sínum. Einstaklingum og fyrirtækjum gefst kostur á að kaupa merki og styrkja starf félagsins til að útbreiða ræktun ávaxtatrjáa á Íslandi.
Á-Vöxtur er hvatafélag um ræktun ávaxtatrjáa á Íslandi. Eplasjóður Á-Vaxtar hefur m.a. styrkt eftirfarandi verkefni með eplapörum:
Reykjavíkurborg (eplapar á Klambratúni); Leikskólinn Nóaborg; Rannsóknarstöð skógræktar ríkisins að Mógilsá og gróðrarreitinn við Safnasafnið á Svalbarðsströnd. Framundan eru mörg slík verkefni.