Fréttir

Enn verður lokað að gosstöðvunum
Enn mælist mikil mengun á svæðinu og vindátt óhagstæð ferðamönnum þótt dregið hafi úr vindi. Mynd/Jón Steinar Sæmundsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
sunnudaginn 16. júlí 2023 kl. 09:30

Enn verður lokað að gosstöðvunum

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tilkynnt að áfram verður lokað að gosstöðvunum við Litla-Hrút, er það gert til að tryggja öryggi viðbragðsaðila og ferðamanna.

Mikil mengun er á svæðinu og þá ekki síst vegna gróðurelda. Lögreglustjóri getur því miður ekki tryggt öryggi þeirra sem inn á svæðið fara við þessar aðstæður. Vindátt er óhagstæð göngufólki þótt dregið hafi aðeins úr vindi. Reykur frá gróðureldum og gosi berst yfir gönguleiðir að gosstöðvum.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept
Þyrla Landhelgisgæslunnar að störfum við að slökkva gróðurelda í gærkvöldi. 

Í dag mun slökkvilið einbeita sér að slökkva í gróðureldum norðan við eldstöðvarnar. Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur að slökkvistarfi en á fjórða tug manna koma að þessum aðgerðum sem hófust nú í morgunsárið.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu í dag:

Norðan og norðaustan 8-13 m/s, en hvassari um tíma upp úr hádegi. Gasmengunin berst til suðurs og má því búast við að hennar verði vart á Suðurstandarvegi og á gönguleiðum að gosstöðvunum, jafnvel einnig í Grindavík.
Spá gerð: 16.07.2023 00:06. Gildir til: 16.07.2023 23:59.

Ákvörðun lögreglustjóra um lokun verður endurskoðuð á fundi viðbragsaðila í fyrramálið kl. 9.

Bílakjarninn
Bílakjarninn