Enn taldar miklar líkur á eldgosi
Frá miðnætti hafa mælst um 800 smáskjálftar, langflestir um miðbik kvikugangsins við Sundhnúk á um 3-5 km dýpi. Skjálftavirknin hefur haldist stöðug frá 11. nóvember. Megin áhersla á vöktun skjálftavirkni er áfram á svæði gangsins og Grindavíkur.
Aflögunarmælingar Veðurstofu Íslands sýna áframhaldandi aflögun á svæðinu við Grindavík. Þær eru í samræmi við að kvika flæði enn inn í ganginn. Hluti kvikugangs virðist vera að storkna, einkum til jaðra en ekki við uppstreymissvæði kviku sem talið er vera við Sundhnúk.
Mælingar á brennisteinsdíóxíð (SO2) virðast sýna hviðukennda afgösun vegna kvikugangsins, en frekari mælinga er þörf því til staðfestingar. Greining þessara gagna er nú í gangi í samstarfi við Chalmers háskólann í Svíþjóð.
Á heildina litið virðist staðan vera óbreytt frá því í gær. Líkur á eldgosi eru enn taldar miklar. Komi til goss er líklegust staðsetning við kvikuganginn.