Enn skelfur Grindavík - Skjálfti upp á M3,4
Jarðskjálfti upp á M3,4 varð í Grindavík þegar klukkuna vantaði um stundarfjórðung í tíu í morgun. Skjálftinn varð 3,3 km. NNA af Grindavík og urðu heimamenn vel varir við skjálftann.
Fjölmargir smáir sjálftar hafa orðið í nótt en þessi sem varð núna rétt fyrir klukkan tíu er sá öflugasti það sem af er degi.