HSS
HSS

Fréttir

Enn skelfur á Reykjaneshrygg
Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl. 08:18

Enn skelfur á Reykjaneshrygg


Jarðskjálftahrina hófst við Geirfugladrang á Reykjaneshrygg um miðjan daginn í gær. Þar hefur mælst um tugur skjálfta yfir 3 á Richter, þar af tveir um 4 á Richter. Fyrir nokkrum dögum gekk skjálftahrina yfir rétt undan Eldey en Geirfugladrangur er nokkru utar. Einhverjir skálftar hafa líka verið við Eldey í nótt, sá stærsti um 3 á Richter. Meðfylgjandi skjálftakort Veðurstofunnar er síðan kl. 8 í morgun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn