Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Enn rifist um Fasteign (EFF): Hundaól eða gæfuspor?
Miklar umræður urðu um málefni Eignarhaldsfélagsins Fasteignar á bæjarstjórnarfundi nú síðdegis. Þetta hefur verið deilumál í bæjarstjórn í nokkur ár.
Þriðjudagur 5. febrúar 2013 kl. 18:39

Enn rifist um Fasteign (EFF): Hundaól eða gæfuspor?

Sjálfstæðismenn ánægðir með nýja leigusamninga Eignarhaldsfélagsins Fasteignar en Samfylkingin segir þá nauðasamninga sem bindi sveitarfélagið í langan tíma.

Langar og miklar umræður voru um nýja leigusamninga Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFF) á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ nú síðdegis. Meirihluti Sjálfstæðismanna fagnaði góðum samningum en Samfylkingin sagði inngöngu í Fasteign hafa verið eins og hundaól um háls bæjarfélagsins.

Meirihluti Sjálfstæðismanna taldi það hafa veri gæfuspor að hafa farið í Fasteign á sínum tíma og skuldbindingar bæjarfélagsins í nýjum leigusamningum lækki um 1,8 til 2,3 milljarða króna en 526 milljóna kr. hlutafé er afskrifað. Fulltrúar Samfylkingar voru á öndverðum meiði og töldu bæjarsjóð tapa peningum og að svigrúmið sem fólst í Fasteign hafi verið eins og hundaól um háls bæjarfélagsins.

Hér að neðan má sjá bókanir Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknar í fundi í dag:


Ánægjuleg niðurstaða - segir meirihluti Sjálfstæðisflokks
Með nýjum leigusamningum við Eignarhaldsfélagið Fasteign mun rekstrarkostnaður Reykjanesbæjar vegna húsnæðis lækka um helming fyrstu tvö árin en síðan um fjórðung eftir það, miðað við sambærilegan kostnað í fyrri samningum. Þá lækka skráðar skuldbindingar bæjarins um 1,8-2,3 milljarða kr. um leið og upphaflegt hlutafé bæjarins í Fasteign, að upphæð 526 milljónir er afskifað. Reykjanesbær verður eftir sem áður stærsti eigandi Eignarhaldsfélagsins Fasteignar með ríflega 55% eignarhlut.
Unnið hefur verið að nýjum samningum við Fasteign í rúmlega 2 ár og er niðurstaðan  í samræmi við þær kröfur sem Reykjanesbær, ásamt öðrum sveitarfélögum í félaginu, óskuðu formlega eftir í október 2010 en um fram þær óskir hefur nú lánum verði breytt úr erlendum gjaldmiðlum í íslenskar krónur. Niðurstaðan er óneitanlega ánægjuleg fyrir Reykjanesbæ eins og önnur sveitarfélög í EFF.
Helstu áhrif af breyttum samningum eru :

Nýir samningar eru alfarið í íslenskum krónum.
Kaupréttur Reykjanesbæjar  á eignum er verulega rýmkaður.
Leigugreiðslur fara upp í greiðslu lána af eignunum
Endurkaupaverð lækkar um 5,3 milljarða kr. og unnt er að kaupa sérhverja
eign út úr eignasafni.
Reykjanesbær getur á samningstíma nýtt sér kauprétt sem tekur mið af stöðu lánanna hverju sinni.
Leiguskuldbindingar Reykjanesbæjar lækka um 1,8-2,3 milljarða kr. Ársleiga á eignum lækkar næstu tvö ár um helming en til lengri tíma um fjórðung.
Rekstur EFF verður lágmarkaður og felst fyrst og fremst í umsjón með innheimtu leigugjalda og greiðslu af lánum auk eftirlits með viðhaldi og meðferð fasteigna félagsins.
Leigutími allra samninga hefur verið samræmdur í 27 ár.
Hlutafjáreign Reykjanesbæjar í EFF, upphaflega 526 milljónir en uppreiknuð um 1100 milljónir er færð niður.
Með nýja samningnum ber leigutaki ábyrgð á viðhaldi og rekstri eigna bæði að innan og utan, en áður sinnti EFF utanhússviðhaldi.

Árni Sigfússon, Böðar Jónsson, Gunnar Þórarinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Einar Þ. Magnússon, Baldur Þ. Guðmundsson, Björk Þorsteinsdóttir.

Hundaól um hálsinn segir Samfylkingin
Guðný Kristjánsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:  Eignarhaldsfélaginu Fasteign (EFF) var ætlað að gera betur en sveitarfélögin höfðu gert í tugi ára og með skuldsetningu eigna áttu að opnast ný tækifæri fyrir sveitarfélögin m.a. á niðurgreiðslu skulda. Þetta gekk ekki eftir, skuldsetning þeirra sveitarfélaga sem voru hluthafar í EFF jókst og illa var farið með tækifærin sem EFF átti að skapa. Þetta sést best á því að sveitarfélögin sem voru hluthafar voru skuldsettustu sveitarfélögin á Íslandi.

Reykjanesbær fór hér fremstur í flokki og svigrúmið sem fólst í EFF reyndist vera eins og hundaól um hálsinn á sveitarfélaginu og eftir sitja brotin kosningaloforð og tómur Stapi.

Nú er raunasögu EFF loksins lokið, félagið hefur verið gjaldfellt og fyrir liggja nauðasamningar til samþykktar.  

Nauðasamingar sem skuldbinda Reykjanesbæ fram til ársins 2040. Reykjanesbær tapar 1300 milljónum í hlutafé, sem greiddar voru á sínum tíma í beinhörðum peningum. Allt tal um lækkun á leigugreiðslum er skrumskæling og með því að lengja leigusamninga tókst að lækka afborganir tímabundið en ekki að fella niður skuldir. Þá tekur Reykjanesbær á sig allt viðhald utan sem innan á eignunum. Samkvæmt nauðasamningunum afsalar Reykjanebær sér setu í stjórn, fulltrúum meirihluta sjálfstæðismanna er greinilega ekki lengur treyst til að vera í stjórn Fasteignar.

Nauðasamningurinn er bein ávísun á þröng kjör bæjarins til langrar framtíðar og  
gerður fyrst og fremst á forsendum lánadrottna Eignarhaldfélagsins Fasteignar.

Friðjón Einarsson, Guðný Kristjánsdóttir og Eysteinn Eyjólfssson.


Umsýsla lána hefðu átt að vera hjá bæjarsjóði - segir Framsókn
Framsóknarmenn í Reykjanesbæ telja að betur hefði farið að öll umsýsla vegna greiðslu lána, er hvíla á leigðum eignum sem bæjarsjóður hefur á leigu hjá EFF, væri hjá bæjarsjóði. Í stað þess þeirrar skipunar að greiða til EFF leigugreiðslur að viðbættu 5% álagi sem enn er óljóst með hvernig farið verður með.
Kristinn Þór Jakobsson.

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024