Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Enn nokkuð í samninga við kröfuhafa
  • Enn nokkuð í samninga við kröfuhafa
    Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Miðvikudagur 24. febrúar 2016 kl. 06:00

Enn nokkuð í samninga við kröfuhafa

- Bæjarstjóri Reykjanesbæjar útskýrir stöðuna í pistli

„Í byrjun febrúar náðist mikilvægur áfangi í viðræðum Reykjanesbæjar við stærstu kröfuhafa sína og af því tilefni var send út sameiginleg fréttatilkynning til fjölmiðla. Í kjölfarið hef ég orðið var við misskilning hjá mörgum sem skildu fréttatilkynninguna þannig að fullgerðir samningar hefðu tekist um niðurfærslu skulda,“ skrifar Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar í pistli á vef Reykjanesbæjar. Í pistlinum kemur fram að því miður sé staðan ekki sú að samningar hafi tekist um niðurfærslu skulda.
 
Skuldavandi upp á 6,35 milljarða
Í pistlinum segir Kjartan Már að það samkomulag sem náðist í byrjun febrúar hafi falið í sér að langstærstu kröfuhafar sveitarfélagsins annars vegar og Reykjanesbær hins vegar hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um það hver skuldavandi/niðurfærsluþörf Reykjanesbæjar er. „Kröfuhafarnir eru fjármálastofnanir sem sameiginlega fjármögnuðu kaup Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. á stórum hluta fasteigna Reykjanesbæjar, og fleiri sveitarfélaga, á árunum eftir 2003 sem síðan voru endurleigðar til sveitarfélaganna. Upphæð skuldavandans var ekki gerð opinber fyrr en í dag (á mánudag, innsk. blm.) þar sem kynna þurfti niðurstöðuna fyrir fjölda annarra kröfuhafa sveitarfélagsins. Þeirri vinnu er nú lokið og skuldavandi uppá 6,35 milljarða gerður opinber,“ segir í pistli bæjarstjórans.
 
Samkomulag forsenda fyrir framhaldið
„Samkomulagið var mikilvægur áfangi vegna þess að á meðan aðilar voru ekki sammála um að Reykjanesbær væri í skuldavanda, og þar af leiðandi ekki heldur hversu mikill sá vandi væri, var ekki við því að búast að samkomulag næðist nokkurn tíma um nauðsynlega niðurfærslu skulda,“ segir Kjartan Már. Samkomulagið hafi því verið algjör lykilforsenda fyrir framhaldið.
 
Nú þegar búið er að ná saman um og kynna hver skuldavandinn/niðurfærsluþörfin er fyrir öllum hlutaðeigandi aðilum hefst vinna við að ná samkomulagi um hlutdeild hvers og eins kröfuhafa í niðurfærslunni. Kjartan segir þær viðræður geta tekið talsverðan tíma þar sem tryggingar kröfuhafa og lánasamningar séu mismunandi og óvíst hvort heildstætt samkomulag náist. Það komi í ljós á næstu vikum. 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024