Enn lokað fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum
Tilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum:
Tekin hefur verið ákvörðun um að lokað verði inn á gosstöðvarnar í dag, mánudaginn 8. ágúst, vegna veðuraðstæðna en veðurútlit fyrir svæðið er ekki gott. Vegna lokunar á svæðinu verður tækifærið nýtt og gönguleið A lagfærð en það er sú gönguleið sem flestir fara þegar farið er að gosstöðvunum. Einnig verður unnið að öðrum lagfæringum á svæðinu.
Opnað verður fyrir aðgengi að gosstöðvunum kl 10:00 á morgun, þriðjudaginn 9. ágúst, að öllu óbreyttu.