Enn leitað undan Reykjanesi
Leit stendur enn yfir að bandarísku ferjuflugvélinni sem talið er að hafi hrapað í sjó um 50 sjómílur vestur af Keflavík í gær.
Aðstæður til leitar hafa batnað eftir því sem liðið hefur á daginn. Varðskip Landhelgisgæslunnar er við leit á staðnum og Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, ásamt Challenger flugvél danska flughersins eru við leit úr lofti. Ekkert hefur fundist af vélinni. Leit verður haldið áfram fram í myrkur.
Mynd: Þota danska hersins, sem tekur þátt í leitinni. Víkurfréttamynd