Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Enn kveikt í bálkesti í Grindavík á jóladagskvöld
Þriðjudagur 26. desember 2006 kl. 14:05

Enn kveikt í bálkesti í Grindavík á jóladagskvöld

Í gærkvöldi söfnuðust nokkur ungmenni saman við skrúðgarðinn Sólarvé í Grindavík og báru eld að rusli sem þau höfðu safnað þar saman. Ekki var um mikinn eld að ræða. Einn 21 árs karlmaður var handtekinn á staðnum eftir að hafa skvett eldfimum vökva á bálköstinn þrátt fyrir fyrirmæli lögreglu um að slíkt væri bannað. Maðurinn var færður til lögreglustöðvar þar sem tekin var af honum framburðarskýrsla og honum síðan sleppt lausum. Maðurinn ungi má búast við sekt fyrir uppátækið. Ekki kom til frekari lögregluaðgerða vegna þessa uppátækis enda voru engin ólæti þessu samfara.

Lögreglumenn í eftirlitsferð um Grindavík veittu athygli að einn skemmtistaða bæjarins var opinn en yfir hátíðarnar mega skemmtistaðir ekki hafa opið frá kl. 18:00 þann 24. des til kl. 06:00 að morgni þess 26. Veitingamanninum var því gera að slíta skemmtuninni sem hann gerði.

 

Ljósmyndir teknar á vettvangi í gærkvöldi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024