HSS
HSS

Fréttir

Enn hækkar verð á fiskmarkaði
Miðvikudagur 23. desember 2009 kl. 09:18

Enn hækkar verð á fiskmarkaði


Meðalverð á fiskmörkuðum hækkaði í nóvember og var 278,19 kr.  Þetta er hækkun frá metverði í október, en aðeins um 10 aura. Þetta er því hæsta meðalverð í einum mánuði sem sést hefur, að því er segir á heimasíðu Reiknistofu fiskmarkaða, sem er með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ. Meðalverðið í nóvember 2008 var 213,14 kr. og nemur hækkunin 30,5 % milli ára. Verðmæti sölunnar í nóvember sl. var 1.913 milljónir sem er 17,9 % meira en í nóvember 2008.
Meðalverðið frá janúar til október var kr. 200,39.  Þetta er í fyrsta skipti sem það fer yfir 200 krónur á þessu tímabili.

Bílakjarninn
Bílakjarninn