Enn fjölgun farþega um Leifsstöð
 Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 7% í maí miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 134 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 144 þúsund farþega nú.  Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 7% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæp 8%.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tæp 9% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr tæplega 517 þúsund farþegum í rúma 562 þúsund farþega. 
Loftmynd/Oddgeir Karlsson