Enn fjölgar gestum á Suðurnesjum
19% aukning á gistinóttum milli ára
Gistinóttum á hótelum á Íslandi fjölgaði um 5% í ágúst 2013 í samanburði við ágúst í fyrra. Á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum um 19% en aðeins Vestfirðir státa af meiri fjölgun, eða 24%. Á Suðurnesjum voru 11.700 gistinætur í ágúst á þessu ári, sem er um 19% aukning miðað við ágúst 2012.
Gistinætur á hótelum í ágúst voru 259.800 og fjölgaði um 5% frá ágúst í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 5% frá sama tíma í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 3%.
Frá þessu er greint á heimasíðu hagstofu Íslands en þar er tekið fram að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.