Enn fjölgar farþegum um Keflavíkurflugvöll
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um 9% í ágúst miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 270 þúsund farþegum árið 2006 í tæplega 294 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 7% milli ára, en farþegafjöldi þeirra sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um rúm 25%.
Mynd: Háannatími við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ljósmynd: Oddgeir Karlsson
.