Enn eykst starf Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum

MSS stóð fyrir bókmennta- og menningarviðburðum í samstarfi við Bókasafn og menningarfulltrúa Reykjanesbæjar og Keflavíkurkirkju. Ráðstefnur voru haldnar og umhverfisferðir voru farnar. Alls 507 einstaklingar tóku þátt í þessari umhverfis- og menningarstarfsemi MSS. 67 nemendur stunduðu á fjarnám á háskólastigi við Miðstöðina á haustmisseri en 43 á vormisseri sem luku tilskildum prófum.
Alls 1862 einstaklingar tóku þátt í starfi hjá MSS á vor og haustönn, en það er 44% aukning milli ára. Heildarkennslustundafjöldi MSS var 3425 eða 49.273 nemendakennslustundir sem er um 70% aukning milli áranna. Að meðaltali hefur því hver þátttakandi varið sem svarar 26 kennslustundum til fræðslu og náms hjá MSS á liðnu ári. Fastir starfsmenn MSS eru þrír.
Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri MSS