Bygg
Bygg

Fréttir

Föstudagur 26. maí 2000 kl. 15:13

Enn eitt umferðarslysið á einfaldri Reykjanesbraut

Alvarlegur árekstur varð um klukkan sjö á í morgun þegar fjórir bílar rákust saman á Reykjanesbrautinni á móts við Straumsvík. Fimm aðilar voru fluttir á sjúkrahús.Orsök slyssins er sú að bifreið, sem var að koma frá Keflavík, var ekið yfir óbrotna línu og yfir á rangan vegarhelming. Þrjár bifreiðar voru að koma úr gagnstæðri átt. Fyrstu bifreiðinni var forðað frá árekstri en önnur bifreiðin fékk bílinn í hliðina, valt og lenti á ljósastaur. Litlu munaði að hún færi ofan í lónið við veginn. Ökumaðurinn lenti síðan beint framan á bílnum sem var númer þrjú í bílaröðinni með hörmulegum afleiðingum. Fimm aðilar voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi og tveir þeirra voru mjög alvarlega slasaðir. Bílarnir eru gjörónýtir. Talið er að allir hafi verið í bílbeltum. Fimm sjúkrabifreiðar frá Hafnarfirði og Reykjavík fór á vettvang og tveir tækjabílar. Lögreglan í Keflavík kom einnig til aðstoðar. Reykjanesbrautinni var lokað í tvær klukkustundir í morgun vegna slyssins. Engar myndir á vettvangi Ljósmyndara Víkurfrétta og myndatökumanni Stöðvar tvö var meinaður aðgangur að slysavettvangi í morgun en lögreglan lokaði Reykjanesbraut við sumarhúsabyggðina í Hvassahrauni. Skýringar sem lögreglumenn á vettvangi gáfu voru þær að ósanngjarn væri að hleypa bíl myndatökumanns inn fyrir lokun á vegi meðan aðrir þyrftu að bíða utan við svæðið. Ljósmyndara fengu hins vegar aðgang að vettvangi frá Hafnarfirði.
Bílakjarninn
Bílakjarninn