Enn einn ökumaður undir áhrifum fíkniefna
Lögreglan á Suðurnesjum kærði ökumann í nótt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglan gerði húsleit hjá manninum í kjölfar kærunnar og fann lítilræði af ætluðum fíkniefnum og tól til neyslu fíkniefna.