Enn einn Hringrásarbruninn – grunur um íkveikju
Talið er að kveikt hafi verið í húsnæði í eigu Hringrásar við urðunarstað á Stafnesi á áttunda tímanum í kvöld. Tilkynning barst rétt fyrir klukkan átta í kvöld um mikinn eldsvoða á Stafnesi. Sást reykurinn frá brunanum víða að og fékk Neyðarlínan m.a. hringingar úr Sandgerði, Höfnum og frá Keflavík.
Slökkvilið Sandgerðis og Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja börðust við eldinn og var slökkt í síðustu glæðunum á ellefta tímanum í kvöld. Þá var reyndar lítið eftir af húsinu sem var stálgrindarhús. Eins og fyrr segir er talið að kveikt hafi verið í húsinu, enda ekkert rafmagn á staðnum.
Mynd: Frá lokum slökkvi- og hreinsunarstarfs um kl. 23 í kvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi
.