Bygg
Bygg

Fréttir

Enn einn áfangi í höfn á Reykjanesbraut
Þriðjudagur 1. júlí 2008 kl. 16:28

Enn einn áfangi í höfn á Reykjanesbraut

Á morgun, miðvikudag kl. 10:00 verður umferð hleypt á tvöfalda Reykjanesbraut frá Vogavegi að Grindavíkurvegi. Slys á þessum vegkafla sem núna er verið að opna voru mjög tíð síðasta vetur.
Byrjað er að fjarlægja hluta bráðabirgðaskilta. Einhver töf verður á umferð á meðan unnið er að færslunni.
Önnur breyting á akstri um Reykjanesbraut er við Stapahverfi (milli Grindavíkurvegar og Njarðvíkur) en búið er að færa umferð þar á nýja brú. Vegagerðin gerir ráð fyrir að það framhjáhlaup verði í notkun fram í október 2008 og biður vegfarendur að sýna tillitssemi og virða hámarkshraða á svæðinu.
Mynd-VF/elg
Bílakjarninn
Bílakjarninn