Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Enginn undir áhrifum áfengis
Frá umferðareftirliti lögreglunnar á Suðurnesjum. Mynd úr safni.
Mánudagur 21. desember 2015 kl. 13:04

Enginn undir áhrifum áfengis

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft sérstakt eftirlit með ölvunarakstri á aðventunni. Vel á þriðja hundrað bifreiðar voru stöðvaðar og reyndist enginn ökumaður undir áhrifum áfengis.

Hins vegar voru tveir undir áhrifum fíkniefna og hinn þriðji sviptur ökuréttindum. Sex til viðbótar höfðu ökuskírteini sín ekki meðferðis og ljósabúnaður á ellefu bifreiðum var ekki fullnægjandi. Fengu ökumennirnir ellefu viðvörun og voru þeir vinsamlega beðnir um að kippa þessu í liðinn hið snarasta.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024