Bygg
Bygg

Fréttir

Enginn stór skjálfti það sem af er morgni
Jarðskjálftamælir er í þessum brunni á Stafnesi. Mynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir.
Föstudagur 10. maí 2013 kl. 10:19

Enginn stór skjálfti það sem af er morgni

Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni sem hófst í fyrrinótt við Fuglasker á Reykjaneshrygg, um 30 km suðvestan við Reykjanestá. Síðustu klukkustundir hafa þó verið rólegri og enginn skjálfti náð þremur stigum frá því seint í nótt eða það sem af er morgni Nokkur hundruð skjálftar hafa mælst í hrinunni sem staðið hefur í um sólarhring.

Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að sex skjálftar af stærðinni 3 og stærri hafa mælst á þessu svæði frá því á miðnætti. Sá stærsti er af stærðinni 4,0 og varð skömmu eftir kl. 01 í nótt.

Klukkan 10:49 í gærmorgun varð skjálfti að stærðinni 4,1 og svo urðu tveir skjálftar síðdegis í gær kl. 17:10 og kl. 18:05 sem voru 4,0 og 4,2 að stærð. Þeir fundust vel á Suðurnesjum.

Jarðskjálftar eru algengir á þessum slóðum á Reykjaneshrygg.


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn