Enginn áhugi fyrir sameiningu?
Rútuferðum sem fyrirhugaðar voru á morgun til að kynna sameiningu Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandarhrepp hefur verið frestað vegna áhugaleysis. Frestur var gefinn til að skrá sig í ferðirnar til kl. 15 í dag og þá höfðu fjórir skráð sig í Vatnsleysustrandarhreppi í ferð til Hafnarfjarðar. Og ástandið var enn verra í Hafnarfirði en þar höfðu aðeins tveir skráð sig í ferð til Vatnsleysustrandarhrepps og var blaðamaður Víkurfrétta í Hafnarfirði annar þeirra.
Ákveðið verður á fundi í næstu viku hvort gerð verði önnur tilraun til að ná saman í rútuferðir.
Ákveðið verður á fundi í næstu viku hvort gerð verði önnur tilraun til að ná saman í rútuferðir.