Engin verður matvælabrennan

Að sögn Friðþórs Eydal, upplýsingafulltrúa VL, eru þessar fullyrðingar orðum auknar. Staðan sé reyndar sú í dag að farið sé að bera á kjötskorti á varnarsvæðinu og er VL farið að kaupa kjöt frá söluaðilum utan Vallar.
Friðþór segir að það sem verði afgangs af öðrum matvælabirgðum s.s. pakka- og niðursuðuvöru, verði sent af landi brott í aðrar birgðastöðvar bandaríksa hersins. Því verði ekki um neina „matvælabrennu“ að ræða.
Gísli R. Eiríksson, stöðvarstjóri Kölku, sagðist ekki vera kunnugt um að til stæði að brenna matvælum í stöðinni, þegar VF hafði samband við hann í morgun.