Bygg
Bygg

Fréttir

Engin sprengja í vél Lufthansa í Keflavík
Sunnudagur 27. desember 2009 kl. 13:20

Engin sprengja í vél Lufthansa í Keflavík


Flugvél sem var á leið vestur um haf frá Frankfurt í Þýskalandi lenti í Keflavík síðdegis í gær eftir að í ljós kom að farangur var um borð í flugvélinni án þess að eigandi hans væri um borð.

Vegna reglna um atvik sem þetta ákvað flugstjórinn að lenda flugvélinni í Keflavík. Hún er að gerðinni Airbus A330 frá Lufthansa flugfélaginu. Hún var á leiðinni til Detroit í Bandaríkjunum líkt og Delta flugvélin sem sprengjutilræðið var gert um borð í sem var á leiðinni frá Amsterdam á jóladag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þegar flugvélin lenti síðdegis í gær var henni samkvæmt öryggisreglum lagt á sérstöku svæði á flugvellinum þar sem farþegar yfirgáfu vélina og leitað var á farangri farþegans sem misst hafði af vélinni í Frankfurt, segir í frétt á Vísi.is.

Engin sprengja fannst um borð.

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð á Keflavíkurflugvöll eftir að tilkynnt var að Lufthansa vélin væri á leiðinni og sáu sérfræðingar gæslunnar um sprengjuleitina.

Tæplega 200 manns eru um borð í flugvélinni.



Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson