Engin leyfi hafa verið veitt ECA Program Limited
Vegna umfjöllunar að undanförnu í fjölmiðlum og á heimasíðu ECA Program Limited um umsókn fyrirtækisins óskar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að taka eftirfarandi fram:
Engin leyfi hafa verið veitt vegna þessarar skráningar. Verið er að fjalla um umsókn ECA um skráningu flugvéla hér á landi vegna hugsanlegrar þjálfunarstarfsemi.
Fráfarandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fól Flugmálastjórn með bréfi 31. ágúst síðastliðinn að hefja undirbúning að skráningu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í bréfinu kemur skýrt fram að með því er ekki veitt heimild til skráningar heldur einungis að kanna fjölmörg atriði sem liggja þurfa fyrir áður en afstaða er tekin til umsóknar ECA.
Þá var Flugmálastjórn í bréfinu falið að kanna tiltekin atriði sem varða meðal annars eðli starfseminnar, viðbrögð alþjóðaflugheimsins en þar hafa Íslendingar mikilla hagsmuna að gæta og reglur hér að lútandi í nágrannaríkjum.
Ljóst má vera að allnokkur undirbúningur þarf að eiga sér stað ef setja á reglur hér að lútandi sem eru í samræmi við íslensk lög á þessu sviði og alþjóðaskuldbindingar.
Að fengnum þessum upplýsingum er fyrst unnt að meta hvaða meðferð umrædd umsókn ECA fær hjá íslenskum yfirvöldum.
Þessi skilningur ráðuneytisins hefur verið ítrekaður við Flugmálastjórn segir í tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í dag.