Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Engin gosvirkni sjáanleg
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 16. janúar 2024 kl. 11:44

Engin gosvirkni sjáanleg

Engin virkni er sjáanleg í gossprungunum. Síðast sáust hraunspýjur koma upp úr nyrðri sprungunni rétt upp úr kl. 1 í nótt. Áfram dregur úr jarðskjálftavirkni og hafa um 200 smáskjálftar mælst í kvikuganginum frá miðnætti sem benda til þess að kvika sé þar á hreyfingu og svæðið að jafna sig. Þetta kemur fram í frétt frá Veðurstofu Íslands.

Mesta skjálftavirknin er við Hagafell í nágrenni við fyrri gossprunguna sem opnaðist á sunnudagsmorgun. Of snemmt er að lýsa yfir goslokum.

GPS mælar nema áfram hreyfingar í og við Grindavík. Kvikugangurinn sem liggur undir Grindavík heldur því áfram að valda þenslu á svæðinu. Hitamyndir úr dróna í nótt sýna að sprungur sem áður höfðu verið kortlagðar suðvestanvert við Grindavík hafa stækkað talsvert. Áfram er mikil hætta á svæðinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024