Engin breyting á heildarskattbyrði íbúa
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97%. Engin breyting verður á heildarskattbyrði íbúa þar sem tekjuskattshlutfall einstaklinga lækkar á móti.
Samkvæmt fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga frá 15.desember 2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar, var eftirfarandi tillaga lögð fram og samþykkt samhljóða:
„Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, sem byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir bæjarstjórn Suðurnesjabæjar að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97%.
Vert er að taka fram að gagnvart íbúum verður engin breyting á heildarskattbyrði þar sem tekjuskattshlutfall einstaklinga lækkar á móti.“
Bæjarstjórnir Reykjanesbæjar, Grindavíkur og Sveitarfélagsins Voga hafa einnig samþykkt að útsvar verði 14,97% á árinu 2024. Eins og í Suðurnesjabæ er vísað til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga.