Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Engar vinnubúðir á Vellinum
Miðvikudagur 15. nóvember 2006 kl. 14:13

Engar vinnubúðir á Vellinum

Sá orðrómur að tugir pólskra verkamanna séu sestir að í íbúðablokkum þeim sem Varnarliðið átti á Keflavíkurflugvelli, er ekki á rökum reistur, segir Magnús Gunnarsson, formaður stjórnar Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Orðrómur um þetta hefur verið á kreiki síðustu daga. Magnús segir að einu Pólverjarnir sem hann viti um á svæðinu sé hópur sem búi þar á vegum ÍAV  í húsnæði sem fyrirtækið byggði á sínum tíma, er í eigu þess og er ekki innan vébanda Þróunarfélagsins.

Magnús segir að enn sem komið er liggi ekkert fyrir um framtíðarskipan svæðisins og ráðstöfun þeirra eigna sem íslenska ríkið eignaðist við brotthvarf Bandaríkjahers frá landinu. „Enda erum við ekki ennþá búin að taka formlega við þessu. Það er verið að ganga frá þjónustusamningi á milli félagsins og ríkisins og eftir það er hægt að fara að vinna í þessum málum á fullu. Í rauninni erum við ekki komin með ráðstöfunarréttinn yfir þessu fyrr en búið er að ganga frá þjónustusamningum, sem ég vænti að muni verða á næstu dögum,” sagði Magnús í samtali við VF.

Yfirlýst hlutverk Þróunarfélagins er m.a. að leiða þróun og umbreytingu varnarsvæðisins og koma því í „arðbær not“ eins og það hefur verið nefnt. Hafa ýmsar hugmyndir verið á lofti í þeim efnum og er háskólaþorp ein þeirra sem þótt hefur hvað mest spennandi.   Ekki síst í því ljósi þykja þær fréttir undarlegar að íbúðarhúsnæðið sé farið að þjóna hlutverki vinnubúða fyrir erlent vinnuafl, en þær fréttir eiga ekki við rök að styðjast eins og áður segir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024