Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Engar verðhækkanir hjá Byko næstu sex mánuði
Mánudagur 15. janúar 2024 kl. 14:36

Engar verðhækkanir hjá Byko næstu sex mánuði

BYKO hefur tekið ákvörðun um að hækka ekki verðlistaverð að minnsta kosti næstu sex mánuði. Til að ná þjóðarsátt þurfa allir aðilar að koma að málum, fyrirtæki landsins, hið opinbera og aðilar vinnumarkaðarins. Ákvörðun BYKO er tekin til að sýna í verki samfélagslega ábyrgð í takt við áherslur fulltrúa verkalýðsforystunnar og atvinnulífsins.

„Í BYKO erum við meðvituð um mikilvægi þess að taka virkan þátt í samfélaginu og leggja okkar af mörkum til að bæta lífsgæði Íslendinga. Með ákvörðun okkar um að halda verði stöðugu næstu sex mánuði, viljum við ekki aðeins sýna ábyrgð okkar sem leiðandi fyrirtækis, heldur einnig vera hluti af lausninni í baráttunni gegn verðbólgunni, í samræmi við áherslur fulltrúa verkalýðsforystu og atvinnulífs. Við trúum því að með því að stíga þetta skref, getum við hvatt aðra til að fylgja okkar fordæmi og þannig stuðlað að heilbrigðara hagkerfi. Góður andi í kjaraviðræðum gefur tilefni til bjartsýni og vill BYKO leggja sitt að mörkum til að svo verði áfram. BYKO kann að endurskoða ákvörðunina í ljósi breytinga á hagkerfinu og niðurstöðu kjarasamninga, “ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024