Engar athugasemdir við deiliskipulag Nesvalla
Engar athugasemdir bárust við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Nesvalla vegna lóðanna Njarðarvellir 2 og Móavellir 1-13 vegna fyrirhugaðrar stækkunar á hjúkrunarheimili um 60 ný hjúkrunarrými.
Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar hefur því samþykkt að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu.