Endurskoða verður meðferð á Reykjanesfólkvangi
Reykjanessfólkvangur líður fyrir óstjórn og illa meðferð. Brýnt er að endurskoða hvernig haldið er á málum varðandi þetta stóra landssvæði, segir Sigrún Helgadóttir, náttúru- og vistfræðingur. Ástand fólkvangsins er rætt á málþingi í Norræna húsinu í dag.
Sigrún Helgadóttir náttúru- og vistfræðingur segir mjög brýnt að endurskoða hvernig fólkvanginum sé stýrt og segir hann hafa orðið útundan. Illa hafi verið farið með landið. Til stendur að leggja Suðurstrandaveg þvert í gegnum fólkvanginn sem þýðir að ferðamananstraumur um svæðið mun aukast mjög og mikilvægt er því að landið verði búið undir það.
Reykjanessfólkvangur er 300 ferkílómetra svæði sem liggur um þveran Reykjanesskagann til sjávar við Krýsuvíkurberg.
Hafnarfjörður og Grindavík eiga stærstan hluta fólkvangsins en vegna þess að hann er útivistarsvæði fyrir allt höfuðborgarsvæðið koma Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær og Reykjanesbær líka að rekstri hans. Ekkert hefur verið gert fyrir svæðið í þau 30 ár sem það hefur verið friðlýst og það liggur undir skemmdum.
Ríkisútvarpið greindi frá þessu.