Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Endurnýjað samstarf HÍ og Keilis
Miðvikudagur 1. júní 2011 kl. 13:27

Endurnýjað samstarf HÍ og Keilis


Þann 31. maí 2011 var undirritaður samstarfssamningur milli Háskóla Íslands og Keilis. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, og Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, skrifuðu undir endurnýjaðan samning milli skólanna um Háskólabrú (frumgreinadeild).

Á fjórum árum hefur Háskólabrú sannað gildi sitt. Hún hefur verið viðurkennd til inntöku í alla háskóla á Íslandi sem og erlenda þar sem reynt hefur á. Meðalaldur nemenda á Háskólabrú er um 30 ár. Segja má að brúin opni ný tækifæri í lífi þeirra rúmlega 400 nemenda sem hafa lokið prófi á Háskólabrú síðustu fjögur ár.

Í vor eru fyrstu nemendur einmitt að ljúka háskólanámi því sem þeir hófu að loknu námi á Háskólabrú. Almennt hefur þessum nemendum vegnað einkar vel í námi. Með nýja samningnum er Háskólabrú fest frekar í sessi og á eftir að skapa ný námstækifæri fyrir nemendur hennar. Keilir er rekstraraðili og umsjár en Háskóli Íslands vottar faglegt innihald.


Á myndinni eru fulltrúar Keilis og Háskóla Íslands við undirskriftina.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024