Bygg
Bygg

Fréttir

Endurlífgaður eftir hjartastopp á knattspyrnuleik
Föstudagur 15. júní 2007 kl. 12:38

Endurlífgaður eftir hjartastopp á knattspyrnuleik

Sjúkraflutningamenn Brunavarna Suðurnesja endurlífguðu eldri mann sem hafði fengið hjartastopp á knattspyrnuleik í Keflavík í gærkvöldi.  Betur fór en á horfðist, en maðurinn var fyrst fluttur á HSS og þaðan á Landspítala. Var hann á batavegi þegar síðast fréttist.

 

Fyrir nokkrum vikum síðan kom upp svipað tilvik þegar annar maður var endurlífgaður á fótboltavelinum.

Annars var gríðarlegt annríki hjá BS í gærkvöldi þar sem níu útköll bárust frá kl. 18 til miðnættis. Þar af var eitt brunaútkall þar sem eldur kom upp út frá eldavél í íbúð á Suðurgötu. Það atvik reyndist minniháttar og áttu slökkviliðsmenn í litlum erfiðleikum með að ráða niðurlögum eldsins.

Einnig var bráðatilfelli úti á Garðskagaflös, tvö minniháttar óhöpp á Reykjanesbraut auk nokkurra sjúkraflutninga til Reykjavíkur.

Á þessu tímabili var mannafli Brunavarna Suðurnesja á þrotum. Varalið var komið út og sjúkrabíll í Grindavík var kominn í viðbragðsstöðu. Toppar sem þessir eru sífellt að verða algengari og jafnframt frekari á mannskap og segir Sigmundur Eyþórson, slökkviliðsstjóri, að þessi mál þurfi að skoða gaumgæfilega.

„Álag er mikið hjá okkur á köflum og til að tryggja sambærilegt þjónustustig í bráðatilfellum og er í öðrum sveitarfélögum, t.d. á Akureyri, þarf að auka útkallsstyrk Slökkviliðsins og skoða með fjölgun slökkviliðsmanna á vakt og fjölda sjúkrabíla á svæðinu. Toppar sem þessir eru að verða ansi tíðir og hluti af daglegum störfum, við þurfum að vera betur í stakk búnir til að bregðast við þeim.“

VF-mynd/Hilmar Bragi - Sjúkrabíllinn í stúkunni á Keflavíkurvelli í gær

Bílakjarninn
Bílakjarninn