Bygg
Bygg

Fréttir

Endurbætur Hafnargötu milli Tjarnargötu og Skólavegar byrjaðar
Mánudagur 12. janúar 2004 kl. 13:25

Endurbætur Hafnargötu milli Tjarnargötu og Skólavegar byrjaðar

Framkvæmdin við endurgerð Hafnargötu hefur gengið vel. Um helgina var hafist handa við að vinna Hafnargötu milli Tjarnargötu og Skólavegs. Af þessum sökum verður Hafnargatan  lokuð fyrir umferð á þessu svæði meðan á framkvæmdum stendur.
Framkvæmdum verður hagað þannig að íbúar verði fyrir sem minnstum óþægindum, göngubrýr verða yfir opna lagnaskurði og verkið þannig skipulagt að truflun fyrir verslunareigendur og rekstraraðila verði sem minnst.
Í auglýsingu Reykjanesbæjar vegna framkvæmdarinnar segir: Þrátt fyrir þetta er ljóst að mikil óþægindi fylgja framkvæmdum sem þessum og er það er ósk okkar að íbúar sýni þolinmæði og taki starfsmönnum verktaka vel og hliðri til eftir því sem hægt er.  Ef allir sem að framkvæmdinni koma leggjast á eitt um að verkið gangi vel fram erum við sannfærð um að við munum í verklok fagna góðu verki.

VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn